22

Apr

50þús í cold hard cash í verðlaun í Bekkpressukeppninni á morgun!

Á morgun laugardaginn 23.apríl klukkan 14:00 ert þú að fara að mæta í Eden Hveragerði að pumpa 100 kílóunum í bekknum. Það kostar 2500 kall að vera með og sigurvegarinn tekur 50þús!

Ég fór áðan og eyddi 50þúsund í vitleysu, ég er það öruggur að ég vinni þetta á morgun!

Getið séð nánari dagskrá hérna í póstinum fyrir neðan!

16

Apr

Bekkpressaðu þig í gang!!


Eins og þið sjáið á þessu rándýra plakati þá er Mini-Expo um páskana. Hrikalega þétt dagskrá föst og lau! Þú getur líka tekið páskaeggið með góðri samvisku á sunnudaginn ef þú reifst þig í gang og tókst vel á því dagana áður!

Ég veit að það eru margir þarna úti sem elska góða bekkpressu og það er hrikalega skemmtileg keppni í bekknum sem Fitness Sport er að halda. Hún er klukkan 14:00 á laugardaginn næsta þann 23.apríl. Hún er haldin í EDEN Hveragerði. Fínt að taka smá bíltúr til Hveragerðis og rífa aðeins í járn!

Þessi bekkpressukeppni er einföld, 100 kíló á stönginni og pump that shit!! Það eru allir vigtaðir og síðan eru reiknuð út stig. Þannig að sá sem er 120 kg þarf að lyfta oftar en sá sem er 60 kg. Vilkins formúla sama og notuð er í Kraftlyftingum. Það geta allir tekið þátt! Meira að segja Harry félagi minn sem er píkuhaus.

Þykki er að spá í að taka þátt í þessu og ekki ólíklegt að sá Þykki vinni þetta. Ég VEIT að þið viljið ekki að Sá Þykki vinni þetta því þá verður hann óþolandi. Þá erum við að tala um svona 10 - 15 mont statusa í næstu viku hvað ég sé hrikalegur. Ég veit að þið viljið losna við það, þannig mætið í þessa keppni og reynið að rúlla Gillz-Höfðingjanum upp!

Já og by the way, Gillz-Höfðinginn er líklega nýja nafnið mitt.

22

Mar

Mannasiðir Gillz koma út á dvd núna á fimmtudaginn 24.mars!

Ég lofaði að updeita ykkur þegar Mannasiðirnir kæmu út á dvd. Það er officially að detta inn. Við vorum að spá í að bíða til jóla og gefa hann út þá en the fans trompuðust þegar þeir fréttu það. Ef að the fans vilja fá dvd diskinn út strax þá gefum við hann út strax! Klárt!

En diskurinn kemur út núna á fimmtudaginn! Ég fer svo langt að segja að þetta sé skyldueign á hverju einasta heimili á landinu.

Ef þið viljið fá diskinn áritaðan þá sjáið þið hérna fyrir neðan hvar Stóri G-Maðurinn verður að árita næstu helgi.

Laugardagur 26.03
Hagkaup Kringlunni 14:00-15:45
Hagkaup Smáralind: 16.00-17:45

Sunnudagur 27.03
Hagkaup Smáralind 14:00-15:45
Hagkaup Kringlunni: 16.00-17:45

Kv, Egill

Lestu alla færsluna » Engin athugasemd

9

Mar

Karlakvöld Players á föstudaginn!


Þessi gæji var á síðasta Karlakvöldi Players, besta kvöld ævi hans. Svona gæti kvöldið þitt endað á föstudaginn!

Stundum þurfum við karlmennirnir að fá smá pásu frá prinsessunum og lyfta okkur upp! Ég veit ekki hversu oft ég hef lent í því að ég er með einn ískaldan bjór að tala um kreatínhleðslu við a fellow bodybuilder og þá kemur dama og truflar okkur. Þannig verður það ekki á föstudaginn! Menn geta talað ýtarlega um "bomb your biceps" lyftingaprógrammið og það er ENGINN að fara að trufla þær samræður.

Núna eru þessi konukvöld mjög reglulegur viðburður. Eina sem maður heyrir auglýst í útvarpinu er einhver konukvöld. Núna er komið að karlmönnunum.

Karlakvöldið er haldið á Players og er núna á föstudaginn 11.mars! Ef þú varst með eitthvað planað, cancel it!

Húsið opnar 19.30. Borðhald kl 20:00, menn byrja á því að súpa sig í gang og síðan er hjólað í goodshit nautasteik. Ef þú ert a real man þá tekurðu hana RARE!

Veislustjórinn er einn besti skemmtikraftur í heimi í dag hann Sóli Hólm. Ekki skemmir það fyrir að Sóli er einn mest dedicated bodybuilder sem ég hef kynnst á ævinni fyrir utan Magga Bess.

Það verða goodshit skemmtiatriði, ég ætla nú ekki að telja allt upp en meðal annars kemur Herbert Guðmundsson eða The HerbMachine eins og hann kallar sig þessa dagana. Hann rífur í mækinn, ef hann tekur lagið TIME, þá tek ég hristing á Players það er klárt!

Á öllum konukvöldum kemur einhver rjómi og kennir kellingunum hvernig á að japla á lim. Sem mér finnst persónulega vera dónalegt, blöskrar alltaf þegar ég heyri í útvarpinu að það sé munngælukennsla á öllum þessu konukvöldum. En Players þurfti að sjálfsögðu að svara þessu og þess vegna verður kennsla í því hvernig þú átt að likka pússý. Það er verið að semja um það hver taki þá kennslu að sér, líklega verður það Kristján Óli Sigurðsson, Ásgeir Kolbeinsson eða þá Óli Osm einkaþjálfari í Sporthúsinu. Þessir menn gætu allir skrifað 250 blaðsíðna bók um hvernig á að gera þetta almennilega.

Það verða fáklæddar dömur að servera drykki og síðan pole fitness kennsla. Það eru kannski einhverjir karlmenn þarna úti sem vilja prófa Pole Fitness og það verður góð kynning á þeirri frábæru íþrótt á föstudaginn.

Yfirleitt á svona kvöldum eru dregnir út 20 vinningar og þeir sökka allir. Á föstudaginn eru dregnir 1-2 miðar út og þá goodshit vinningar!

Miðar í forsölu kosta 3900 en 4500 krónur við hurðina Hægt að kaupa miða í forsölu eftir 18:00 á daginn. Hún er búin annaðkvöld.

Dj Danni Deluxe sér um tónlistina og síðan opnar húsið 23:30 fyrir almenninng.

Ekki vera að hnefa þig á föstudaginn þegar þú getur mætt á goodshit karlakvöld! Fá góða mætingu í þetta og þá getur þetta orðið reglulegur viðburður! Sjáumst GLERharðir á föstudaginn!

17

Feb

Tveir Rasshausar í kvöld!

Vanalega er einn rasshaus í hverjum þætti en í þættinum í kvöld eru tveir rasshausar. Þemað er Útlit&Heilsa og það eru tveir rasshausar teknir fyrir, feiti fasteignasala rasshausinn og horaði rasshausinn. Jóhannes Haukur leikur feita fasteignasalann og Úlfar Linnet leikur mjóa rasshausinn.

Ég er búinn að stúdera feita fasteignasalann núna í mörg ár en nágranni minn Gylfi Þór Gylfason var fasteignasali áður en hann fór í veitingabransann. Gylfi var aldrei feitari en akkúrat þegar hann var fasteignasali. Eftir að hann fór í veitingabransann hefur hann tálgað sig vel niður. Í rauninni er karakterinn sem Jóhannes Haukur leikur byggður á þessum feita nágranna mínum.

Það eru rándýrir aukaleikarar í þessum þætti eins og þið munuð sjá. Gísli Örn Garðars, Björn Hlynur, Ívar Guðmunds, Ásgeir Kolbeins, Logi Bergmann, Jörundur Ragnarsson, Hannes Steindórs stjörnu-fasteignasali, Hjörbert Kjernested, Magnús Ver, Steinn Ármann, Maggi Bess, Halli Hansen, Heiðrún Fitness drottning, Reynir Pretty Boy, Geir Ólafs og Haffi Haff svo einhverjir séu nefndir!

Síðan má sjá líka minni spámenn með stjörnuleik eins og rjóminn Harry Sampsted vinur minn, hann leikur í goodshit sturtuatriði með Gun-Man sem er a professional bodybuilder. Ester Ósk Gunnleifsdóttir litla frænka sýnir stjörnuleik og það verður líklega leikkona í framtíðinni frekar en markmaður eins og pabbi sinn.

En ekki missa af þættinum í kvöld, hann verður að sjálfsögðu goodshit eins og allir!

Lestu alla færsluna » Engin athugasemd
Goodshit
Hver er að tjá sig? LÁTTU GILLZ HEYRA AÐ!
Spurt og svarað SENDU GILLZ SPURNINGU
Sendu spurningu á Gillz og spurningunni þinni gæti verið svarað í næstu bók!
2010 © Egill Gillz Einarsson - Allur réttur áskilinn.
Skapalón gerði þetta goodshit útlit fyrir Þykka